 |
Thursday, August 25, 2005
jæja, nú hef ég ákveðið að yfirgefa blogdrive.com og færa mig yfir á annað....breyta til þið vitið...grín... já, allavega, síðan heldur sér samt á www.jasser.tk, en er þó tæknilega séð www.thejasser.blogspot.comen endilega skoðið hana, hún er flott sko... www.jasser.tktakk fyrir fimm kallinn minn... kv, Jasser
Posted at 8/25/2005 5:42:07 pm by Jasser
Wednesday, August 24, 2005
Sæl verið þið, og þetta var skipun... Jamm, tók eitthhvað perónuleikapróf á netinu sem ég fékk hjá Árný, takk fyrir það...þetta var semsagt eitthvað, hvaða fræga leitoga líkist þú mest...og hér eru niðurstöðurnar...!! semsagt, ef ég þýði lauslega, Þú ert rósamt aflífunarfórnarlamb. Þú ert Abraham Lincoln. Þú ert með friðsamlegt eðli, og ert góður að leysa deilur, fyrir utan einstaka borgarstyrjaldir. Ekki amarlegt það...er ég ekki líka pínu líkur honum? Tja, maður spyr sig, kannski er ég bara ruglaður...prófiði þetta endilega! kv, Jasser Abraham og hans synir, og hans synir, Jasser Abraham
Posted at 8/24/2005 4:28:09 am by Jasser
Saturday, August 20, 2005
Skortur á alheimsneti í hámarki undanfarið
jæja jæja fólk...
Sæl og blessuð enn og aftur...ööö, netbilanir......leiðindi.....eee.....söknuður.....öö.....samskptaskortur....hmm......bjúga.... og þar með hef ég hef tekið þá ákvörðun að gera eitthvað við þetta blogg, þar sem ekkert hefur gerst hér síðan Móses keypti ölið í denn...eða eitthvað svoleiðis....allavega, engan veginn hægt að segja frá öllu, þar sem svo mikið hefur drifið á daga mína frá síðustu skrifum mínum,þannig að ég gef ykkur bara svona það helsta....
Núh, verslunarmannahelginni var varið í mót á Eyjólfsstöðum, afar ánægjulegt það....og svo vikan eftir hana var lítill biblíuskóli á sama stað, þar sem 20+ unglingar komu saman, bjuggu í agnarsmáu húsnæði saman, og fengum fræðslu og kennslu, og skemmtum okkur náttúrulega konunglega við það....nú....
jájá, spólum aðeins áfram, samkoma í gær, hún var mögnuð....um er að ræða sameiginlega samkomu tveggja unglingastarfa, þ.e. UNIK og Filo, og heppnaðist hún með stakri prýði, og gaman af því....aaahhh, nú, aahhh.....Menningarnótt! í dag ætla margir krakkar að hittast á Ingólfstorgi og mála andlit, dreifa blöðrum, spila tónlist og annað slíkt...og það verður bara gaman, .....og ég er ekki frá því að ég þurfi að mæta þangað eftir 1 og helfen tíma...þannig að ég hitti einhverja af ykkur pottþétt þar....
Allavega, get ekki skrifað meira núna...heyri í ykkur seinna...
kv, Jasr
Posted at 8/20/2005 5:41:47 am by Jasser
Tuesday, July 26, 2005
Sælar!
vá hvað það er skrítið að nota loksins íslenskt lyklaborð aftur...jæja, ég er kominn aftur frá 6 vikna löngu sumarfríi/kórferðalagi í Bandaríkjunum, og er bara mjög sáttur við það, enda ekki um stutt orlof að ræða, nei! Jæja, þið hafið fengið að heyra smá hluta úr sögunni, en það er ekki séns að ég nenni að skrifa aðalatriði úr 6 vikna löngu ferðalagi hér, þannig að þið getið bara spurt mig ef þið viljið.....
Það er rosalega skrítið að koma aftur hingað og heyra íslensku...við töluðum svo mikla ensku þarna úti...furðulegt...ég fór í Bónus í dag, og allt í einu allt fullt af íslensku fólki í kringum mig, og þar missti ég heldur niðr' um mig buxurnar...stórfurðulegt...allavega, maður á eftir að vernjast þessu fljótt aftur...
jæaja...hvað á maður að segja eftir svona....hmm..allavega, skemmti mér mjög vel, gaman að hitta fjölskylduna aftur, og amma mín kemur hingað í heimsókn í október....bara svo þið vitið af því fyrirfram...eeeeeeeeeeníveí...
Já, það var annað smá sjokk fyrir mig að koma aftur til landsins, nánar tiltekið, Íslands...þannig var mál í vesti að flestir félagarnir bara á víð og dreif um allan heim og maður veit bara ekki upp né suður og stendur bara hér eins og hæna á verkalýðsdeginum...jújú, bö í sviss, hannz í Lon, Al líka í Lon...Íbs nýkominn frá Lon...Ings og Ágú á Ísafirði(?)....Vallý Baba á Eyjólfsstöðum....eeeníhú....svo ætlum við öll náttúrulega að hitta þar um verslunarmannhelgina og vikuna eftir það...nema náttúrulega Bö...og Hannzína....já!
Hey, er að fara í tannlæknatíma...heyri betur í ykkur seinna.....
kv, Jasser útlendingur ;)
Posted at 7/26/2005 12:16:28 am by Jasser
Friday, July 08, 2005
Nei nei, ekkert mikid ad gerast...
Daginn...
adeins ad lata vita af mer her i amerikunni...allavega, sidast tegar eg skerifadi var eg i O.C....tadan keyrdum vid til Las Vegas, tar sem vid gistum einnig a 5 stjornu hoteli, sa batman begins tar...og svo heldum vid afram i gegnum Nevada og Arizona, saum miklagljufur, heldum afram til Utah, tar sem tetta korafestival var...President Grimson var tar, og helt litla raedu...og svo heldum vid til baka til San Fran, tar sem korinn tok flugid aftur til Islands, en vid fjolskyldan heldum aftur nidur til Kaliforniu og forum m.a. i 3 daga ferd um Disneyland...afar gaman...jaja, heilsudum svo uppa skyldmenni i grenndinni, og heldum aftur nordur a boginn, alla leid upp til Oregon, sem er i NV-horni Usa...tar byr fodursystir min og co, og lika amma min og tar er eg nuna...
MAdur er nattla buinn ad versla mikid...ipod, bol, buxur, bol, solgleraugu, sundskylu, bol, sko, bol, hatt, sko, linsu a myndavel, og bol...eg ma til med ad segja ykkur fra odru skoparinu...svartir og hvitir converse skor, med dokk-gulum reimum, naestum tvi appelsinugulum, graenir ad innan, og graen rond eftir hlidinni... afar smekklegir to eg segi sjalfur fra...og ipodinn er lika graenn...:D
allavega, sakna ykkar heima alveg svakalega mikid, og 2 vikur i tad ad eg komi aftur...
eg kved! -Jasser Kani
Posted at 7/8/2005 3:57:05 pm by Jasser
Sunday, June 19, 2005
Komidi sael thid a klakanum!
Akvad ad skrifa ykkur sma og segja hvad a daga mina hefur drifid...Vid flugum til San Francisco, einir 9 timar takk fyrir, og ekki baetti ur skak ad sjonvarpid var bilad, thannig ad vid fengum enga mynd eda neitt til ad horfa a! Allavega, vid vorum tvaer naetur i San Francisco, keyrdum svo alla leid nidur til L.A., gistum reyndar eina nott a leidinni, og nuna er e a 5 stjornu hoteli i Orange County (O.C.) og er rett ad fara ad leggja af stad til Vegas, tar sem vid verdum eina nott, og forum svo til Utah tar sem tetta korafestival er....
Sakna ykkar allra rosalega mikid, og to tad se gaman her, ta hlakka eg samt til ad koma heim...Naest aetla eg ad leyfa mer ad vera svolitid vaeminn, tannig ad tid sem hondlid tad illa aettud kannski bara ad haetta ad lesa nuna...
Eg aetladi nu baraa ad kasta lokakvedju a tvo vini mina sem eru ad fara ut i bibliuskola....Boddi, eg veit ad tu att eftir ad standa tig einstaklega vel i bibliuskolanum, tad er ekki spurning. Takk fyrir ad vera tu, tu ert buinn ad vera mikil fyrirmynd fyrir mig i kristna lifinu, og tad er magnad ad starfa med ter i lofgjord og odru. Hafdu tad nu REGLULEGA gott, og svo bara vera duglegur ad balogga...Gud blessi tig og dvolina tina uti...
og Hanna...tu ert djorf ad stiga uti ottan, og Gud mun blessa tig fyrir tad. Vertu aldrei hraedd vid ad hlyda Honum, og mundu ad Hann er alltaf med ter. Tad er buid ad vera otrulega dyrmaett ad eiga tig sem vinkonu, meira en tu veist, og eg hlakka til ad fa tig heim aftur. Vid skulum bara vona ad tu tekkir mig aftur...;) Tykir otrulega vaent um tig, og tad gildir lika um tig, tad sem eg sagdi um Bo, vera dugleg ad blogga! Alger skylda! ;) Gud blessi tig rikulega, og sendi tig aftur hingad brennandi og full af andanum!
Gud blessi ykkur hin lika!
kv, Jasser
Posted at 6/19/2005 8:05:50 am by Jasser
Wednesday, June 08, 2005
Komiði sæææl
Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum sem komu að skipulagningu Darling Hiroko tónleikana, sem áttu sér stað í gær. Við hefðum engan veginn getað þetta án ykkar...Takk! Þeir heppnuðust bara mjög vel, ótrúlega gaman. Samt sorglegt, af því að þetta var í síðasta skipti sem við hljómsveitin spilum allir saman þangað til að minnsta kosti næstu jól, af því að Bezu er að fara út...frekar sorglegt...en jæja...
Svo er maður að fara til Bandaríkjanna eftir viku. 5 vikna ferðalag, þar af tvær vikur kórferðalag með Samkór Selfoss (don't ask...) og svo 3 vikur fjölskylduferðalag, sem verður án efa mjög skemmtilegt...
Hinsvegar, næstu helgi ætlum við unglingarnir að skella okkur á Selfoss á eitt stykki unglingamót þar, og það verður snilld! Við ætlum að hitta unglingana þar, og boða, og skemmta okkur, og bara hafa það geðveikt skemmtilegt...hvet sem flesta til að mæta...ég verð að sjálfsögðu á staðnum, og ég hlakka gríðalega til...
Hey, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, þakka öllum aftur fyrir gærkvöldið, þetta var geðveikt gaman...
-Jasser
Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður, segir Drottinn. Fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jer 29:11
Posted at 6/8/2005 10:10:49 am by Jasser
Tuesday, May 31, 2005
Sælar
Klukkan er 00:12, kominn þriðjudagsmorgun, og ér að fara að vinna eftir nokkra klukkutíma. Netið er loksins komið í lag, eftir langa bið, var samt ábyggilega bara hollt fyrir mig, þetta tók svo svaðalega mikinn tíma úr lífi manns, eiginlega bara háður þessu! En já, gott að vera kominn aftur í siðmenninguna...
Emm, já, föstudagurinn var skemmtilegur, við í kristkirkjunni fórum í heimsókn í Fíladelfíu, sem var að öllu leyti frábær...Darling Hiroko tók lagið og kynnti tónleikana, ásamt vafasömum gjörning sem fylgdi á eftir, en þetta var bara gaman... sunnudagurinn var snilld, fór með kirkjunni í Viðey um morguninn, þar sem við grilluðum, áttum smá stund, fórum í fótbolta, bara rosalega skemmtilegur tími...svo um kvöldið sáum við unglingarnir um samkomuna, og ég er ekki að grínast með það, þessi samkoma var snilld! Vá, rosalega öflug lofgjörð, frábær salur, MÖGNUÐ predikun hja Bödda, Darling Hiroko tók lagið, and everything walked up...(allt gekk upp) ;)
Já, talandi um Hiroko, þá eru tónleikarnir eftir viku, mikil tilhlökkun á bæ, mikið að gera í undirbúningi...þetta verður gaman...Hanna Sirrý, sem er allt í öllu í þessari hljómsveit, hefur hlotið viðurnefnið "The WoManager", sem er ekki verra, og hún á mikinn heiður skilin fyrir sitt framlag í hljómsveitina og undirbúninginn...en já vonast til að sjá ykkur öll þar eftir viku, tónleikarnir eru semsagt uppí Íslensku Kristskirkju, fossaleyni 14, grafarvogi, kl:21:00, en húsið opnar tæplega hálftíma fyrir það...'
Gjörningafélagið sem fyrrum gekk undir nafninu Jalli og Asser hefur nú breytt nafninu sínu í "Loddari", og mun það standa framvegis. Hélt að ég ætti kannski bara að láta ykkur vita af þvíþ...
Ekki fleira í bili... -Jasser
Spakmæli dagsins: Predikaðu látlaust, og ef þú þarft, máttu nota orð
Posted at 5/31/2005 12:12:39 am by Jasser
Friday, May 27, 2005
I want my breakfast served at eight with ham and eggs upon the plate A well-boiled steak I'll eat at one and dine again when day is done
I want an ultra modern home nd in each room a telephone Soft carpets too, upon the floors and pretty drapes to grace the doors
A cozy place of lovely things like easy chairs with innersprings And then I'll get a small TV of course, I'm careful what I see
I want my weardrobe, too, to be of neatest, finest quality With latest style in suit and vest why shouldn't Christians have the best?
But then the Master I can hear in no uncertain voice, so clear. "I bid you come and follow me The Lowly Man of Galilee"
"Birds of the air have made their nest and foxes in their holes find rest. But I can offer you no bed No place I have to lay my head"
In shame I hung my head and cried. I could I spurn the Crucified? Could I forget the way He went, the sleepless night in prayer He spent?
For forty days without a bite alone he fasted day and night Despised, rejected - on He went and did not stop till veil he rent.
A Man of sorrows and of grief no earthly friend to bring relief "Smitten of God" the prophet said Mocked, beaten, bruised, His blood ran red.
If he be God and died for me no sacrifice too great can be for me, a mortal man, to make; I'll do it all for Jesus' sake
Yes, I will tread the path he trod No other way will please my God; So, henceforth, this my choice shall be, My choice for all eternity.
spyrjið mig ef þið skiljið ekki eitthvað....
-Jasser
Posted at 5/27/2005 6:20:01 am by Jasser
Wednesday, May 18, 2005
Netbilanir ásamt fleiru...
Sælar...
ok, númer eitt á listanum, sorry hvað ég hef ekki skrifað lengi, netið er búið að vera bilað heima (er enn), og ég hef þurft að leita annað til þess að fá aðgang að netinu, en það reddast vonandi bráðlega...
yeah...ok, ég er búinn í prófunum og er þ.a.l. kominn í sumarfrí, sem er yndislegt alveg, gekk bara þokkalega, er mjög ánægður að vera búinn...oooooog, já, samkomur um helgar að vanda, en það sem er frábært er það, að engin ein samkoma er eins! Ég upplifi svo rosalegan mun á þeim öllum, allar frábrugðnar hver annari! Og ég trúi því að Guð vilji hafa það svoleiðis, því ég trúi því að hann vilji alltaf gefa okkur eitthvað nýtt, einhverja nýja áskorun, einhverja nýja blessun...
Ég skrapp á tónleika síðasta mánudag, Gospelkór Reykjavíkur, og ég er ekkert að grínast með það, þetta var alveg magnað! Vá vá vá, GEÐVEIKT!! Hefði viljað fara aftur í gærkvöldi, en komst því miður ekki...allavega, stórmagnað hjá þeim, og eiga <------------------------------svona--------------------------------------> mikið hrós skilið!
eee, já! Svo bara Evróvísjón næstu helgi!! Jájá, ég hlakka bara skítsæmilega til þess, mér finnst reyndar gæðin á tónlistinni hafa hrapað og hrunið núna síðustu ár, vona að þau bæti sig þetta árið...ég er reyndar bara búinn að heyra sárafá lög sem verða þetta árið, man eftir Finnlandi, og jájá, ágætislag svosem, sjáum hvernig hann stendur sig Live...
Eitt sem liggur mér þungt á hjarta þessa dagana, er að treysta Drottni. Hey, auðvelt að segja það, er það ekki? Við eigum að geta treyst honum fyrir öllum okkar ákvörðunum, og við VITUM að hann mun vel fyrir sjá! Kannski ekki endilega eins og við viljum að hann geri það, en hann veit hvað er best fyrir okkur...af hverju ætti það að vera svo erfitt að treysta honum?? Allavega, í því samhengi sem ég er að pæla núna, er það að, Guð hefur kallað okkur öll í einhverja þjónustu...sumir hafa tónlistarhæfileika, sumir verða smiðir, og sumir stjórnmálamenn...ég trúi því að Guð hafi kallað mig í boðunarstarf, og það mikið í gegnum tónlist, og hljómsveitina...þar sem sumir fara í háskóla og mennta sig frekar, verða smiðir eða eitthvað annað, trúi ég að Guð hafi hlutverk fyrir mig og Hiroko útí heimi! Og, nú kem ég að point-inu...ef Guð vill mig útí heimi, kannski ekkert sérmenntaðan, verð ég að treysta honum fyrir því að hann sjái fyrir mér þar...þú veist, ég ætti að geta sofið bara undir berum himni útí skógi bara einhversstaðar í Mongolíu, og treyst því að þegar ég vaknaðinæsta morgun, væri dautt hreindýr eða eitthvað þarna liggjandi hjá mér!! eða, þið skiljið mig....allavega, ég veit ekki hvort að ég kom þessu frá mér almennilega, ég vona að þið skiljið hvert ég er að fara...ekki hafa áhyggjur! Ef við hlustum á hann og fylgjum honum (sem ætti nú ekki að vera of erfitt, er það?), þá reddast allt!!
Heyri betur í ykkur seinna, þarf að fara...
Guð blessi ykkur! -Jasser
Posted at 5/18/2005 1:32:13 pm by Jasser
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|